Þjóðkirkja og trúarbrögð eru tímaskekkja á 21 öldinni

Í frétt í dv.is í dag með fyrirsögninni „Þurfa að bregðast við af auðmýkt og hugrekki“ þar sem talað er við þrjá presta þá Séra Örn Bárð Jónsson, Séra Þórhall Heimisson og Fríkirkjuuprestinn Séra Hjört Magna Jóhannsson og umfjöllunarefnið var staða þjóðkirkjunnar vegna þess hvað margir eru að segja sig úr henni. Það var ekkert sem þeir sögðu þessir guðsmenn sem vakti athygli mína, heldur var það skrif í athugasemdum þar sem bent var á það að við fæðumst í þetta samfélag "þjóðkirkjuna". Hvernig má það vera að á 21 öldinni að fyrsti félagsskapurinn sem við erum skráð í er þjóðkirkjan. Jafnvel áður enn tekin er sjálfstæða ákvörðun hvaða lið maður styður í íþróttum nú eða hvaða stjórnmálaskoðun maður hefur. Því meira sem ég hugsa um þetta þá hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þetta er fáranlegt og algjörlega úr takti við tímann. Það er sjálfsögð krafa að vera ekki stimplaður þegar maður kemur í heiminn af jafn heimskulegum trúarbrögðum eins og kristni er. Þetta er mín skoðun almennt á trúarbrögðum hvaða nöfnun sem þau nefnast ég tek þetta fram til að fyrirbyggja allan misskilning. Þetta er eitthvað sem hver og einn á að gera uppvið sig þegar hann kemst til vits og ára. Aðskilnaður ríkis og kirkju er óumflýljanlegur að mínu mati og hefði átt að gerast fyrir löngu síðan. Þetta er mannréttindamál og það verður fróðlegt að sjá hvort að það sé til nógu hugrakkur stjórnmálamaður á þingi eða stjórnmálamenn til að skilja okkur frá þessari heimsku í eitt skipti fyrir öll.

Af hverju þarf þetta heimska kristna lið að standa í svona vitleysu

Af hverju þarf þetta heimska hærgri sinnaða kristna lið að standa í svona vitleysu að kveikja í trúarriti múslima það er ekkert að gerast í höfðinu á þessu fólk annað en það að komast í fjölmiðla heimsins fyrir heimsku sína. Þetta staðfestir það fyrir mér að trúarbrögð eru það heimskasta sem maðurinn hefur fundið upp og breytir engu hvaða trúarbrögð eiga í hlut þau eru öll jafn mikið rugl, bull og tómt kjaftæði í mínum huga. Það undirstrikar heimsku mannsins að lifa síðan eftir þessari þvælu.

http://www.visir.is/sjo-drepnir-og-tveir-afhofdadir-vegna-bokabrennu-i-florida/article/2011110409849


Refsiaðgerðir ! það mun ekki stöðva Gaddafi, það stöðvaði ekki heldur Saddam Hussein eða serbneska stríðsglæpamenn á sínum tíma.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræðir nú ályktunartillögu um refsiaðgerðir gegn valdhöfum í Líbíu. Nokkrir Evrópuleiðtogar segja brýnt að bregðast skjótt við ástandinu í Líbíu, meðal annars með hörðum refsiaðgerðum.

Í ályktunar tillögu sem nú er rædd í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna er gert ráð fyrir víðtæku refsiaðgerðum, einkum gegn valdhöfum í Líbíu, þar á meðal ferðabann og frysting eigna, einnig bann við sölu á vopnum til Líbíu.

Hvað er verið að gera með þessu, mun þetta koma almenningi til góða í Líbíu. Getur verið að Gaddafi fái nú frið til að slátra andstæðingum sínum í skjóli þessara refsiaðgerða. Saddam Hussein lét ekki refsiaðgerðir ekki stöðva sig í því að drepa og brjóta á mannréttindum þegna sinna. Það sama gerðist í fyrrverandi Júgóslavíu serbnesku stríðsglæpamennirnir héldu áfram að drepa saklausa borgara í Bosníu þrátt fyrir refsiaðgerðir. Miðað við þann fréttaflutning sem hefur verið þá er maðurinn brjálaður og mun ekki hikka við að drepa almenna borgara í þúsunda ef ekki tugþúsunda tali til að halda völdum. Er þetta kannski þróunn sem er ekki hægt að stöðva, þurfa kannski allar svona byltingar að kosta miklar blóðsúthellingar. Byltingin í Rússlandi 1917 var blóðug þetta er ekki ósvipuð bylting, miðað við þær þjóðfélagslegu breytingar sem munu eiga sér stað í framtiðinni, ef hún tekst þar að segja. Ég er samt þeirra skoðunar að alþjóðasamfélagið geti ekki á net og upplýsingaöld látið þar við sitja . Vonandi verður þetta ekki þannig að við horfum á fólk slátrað í gervihnattasjónvarpi. Í skjóli þess að alþjóðasamfélagið telji sig hafa gert nóg með því að setja á refsiaðgerðir gegn Gaddafi, reynsla sögunnar hefur sýnt það að það er bitlaust vopn gegn sjálfhverfum hættulegum einræðisherrum.


Vondandi tekst fólkinu að koma Gaddafi frá völdum og hans liði.

Ég verð að viðurkenna það ég þekki ekki mikið til Lýbíu, en það segir ansi mikið ef það er algjört fjölmiðlabann í landinu frá erlendum fjölmiðlum. þannig að ég reikna með því að mannréttindi eru ekki virt og þar ríki algjört harðræði.
Enda er talið að stjórnaherinn hafi drepið nokkur hundruð mótmælendur nú þegar. Vonandi verður ekki frekara blóðbað þarna og fólkið sigri að lokum líkt og í Egyptalandi.

Guð er ekki góður !

http://www.youtube.com/watch?v=iTpJ8PGT2yY&feature=channel

Bandaríkjamenn nota ¼ af olíuframleiðslu heimsins. Þeir eru rétt um 300 miljónir Þeir nota 400 milljón gallon á hverjum degi.

Bandaríkjamenn beittu 18 feb 2011 neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir að það ályktaði gegn frekari landnemabyggðum Ísraela. Hvernig ætli að standi á því ?

Bandaríkjamenn eru það háðir olíuframleiðslu heimsins miðað við að þeir nota 25 % af henni. Allar breytingar á olíuviðskiptum hafa bein áhrif á efnahagsmál þeirra. Þeir gera allt til að halda ítökum sínum í þessum heimshluta. Hverjir eru svo helstu bandamenn þeirra, jú það eru Ísraelar. Ekki vegna þess að þeir eru almennt sammála því að sú þjóð sé hin eina guðsútvalda. Örugglega eru einhverjir brjálæðingar þarna inn á milli sem trúa þeirri firru.

Það fór mikill skjálfti á stað þegar Egyptar losuðu sig við helsta bandamann bandarískra stjórnvalda, Mubarak. Þögnin var ærandi í margar vikur frá Hvíta húsinu enda hafa Bandarísk stjórnvöld örugglega verið að velta fyrir sér hvernig flutningsleiðin um Suezskurðinn yrði eftir byltinguna. Ég minni líka á það í því samhengi að Bandríkjamenn veittu Egyptum þegar að Mubarak var við völd 1,3 milljörðum dala í hernaðaraðstoð á ári til að viðhalda sínum ítökum í olíuviðskiptum í þessum heimshluta. Enda var það raunin að Íranir voru fljótir að senda herskip á staðinn starx eftir fall Mubarak. Það var talað um að það væri ögrun við Ísraelsríki þegar að Íranir komu með sitt herskip. En hvað er þá tölvuárásin á Íranani sem Ísrael og Bandaríkjamenn gerðu. Sem var gerð með því augnarmiði að tefja kjarnorkuvæðingu Írana var það ekki meira en ögrun! Ég vil minna á það að Ísrael á kjarnorkusprengjur sem er ekki hugsuð í friðsamlegum tilgangi. En Íranir hafa gefið það út að þeir ætli að nota kjarnorku sína til raforkuframleiðslu.

Saudí Arabísk stjórnvöld er önnur einræðisstjórn sem flokkast sem bandamenn. Sádí Arabar fluttu út olíu fyrir sem nemur 150 milljörðum dala árið 2006. Hversu stór hluti af þeim útflutningi fór til Bandaríkjanna.

Reyndar eru farnar að heyrast ansi háværar raddir í Bandaríkjunum í dag, að á sama tíma og þeir eru að selja olíu vinni þeir á bak við tjöldin að fjármagna hryðjuverkastríð gegn Bandarískum stjórnvöldum í nafni Íslam. Einhverjir hafa áhyggjur af því að fjármögnun hryðjuverkasamtaka komi þaðan. Það eru helst hægri sinnaðir kristnir trúarofstækishópar sem hafa haldið þessu fram sem hafa jafnframt haft sín ítök í stjórnkerfi Bandaríkjanna í gegnum árin.

Bandarískum stjórnvöldum væri nær að skoða sinn eigin garð!
Því það eru engin trúarbrögð sem stækka jafn ört og Íslam eins og í Bandaríkjunum núna sem stendur. Hvernig ætli að standi á því ?
Kannski vegna þess að þeir ætla að skera niður í velferðakerfinu sem nemur 60 milljörðum dala á þessu ári. Það er meira en 1/3 af útflutningi Sádí araba árið 2006. Líklega á að auka hernaðarumsvifin til að tryggja það að olían komi með góðu eða illu, það ætti ekki að koma neinum á óvart að ráðist verði á Íran næst.

Hvaða þjóðfélagshópur er það sem tekur á móti íslamskri trú helst í Bandaríkjunum. Jú það eru fangar enda fer þeim ört fjölgandi í frá ári til árs í Bandaríkjunum, það er talið að 1 % af þjóðinni sé á bak við lás og slá í dag. Margir vilja meina að svona andfélagslegur þjóðfélgshópur sé hvað hættulegastur að breiða út trú. Ekki veit ég hvort að ég sé sammála þeirri kenningu að sá þjóðfélagshópur sé hættulegri en herskáir kristnir hernaðarhaukar sem hafa drepið kúgað í nafni heimsvaldastefnu kapitalismans síðustu áratugi.


Hvaða skilaboð eru þetta. Er Obama "puppet" ?

Obama beitir neitunarvaldi í fyrsta sinn

Frá fundi öryggisráðs SÞ. Reuters
Bandaríkjamenn beittu í dag neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir að það ályktaði gegn frekari landnemabyggðum Ísraela. Þetta er í fyrsta skipti sem neitunarvaldinu er beitt eftir að Barack Obama tók við sem forseti.

Fulltrúi Palestínumanna lét hafa eftir sér að þeir myndu endurskoða allt samningaferli friðarviðræðna eftir niðurstöðuna í öryggisráðinu.

Susan Rice, sendiherra Bandaríkjanna við SÞ, sagði í dag að ríkisstjórn sín hefði því miður ákveðið að taka stöðu gegn ályktuninni sem um 130 ríki studdu auk palestínskra stjórnvalda.

„Ályktunin eykur hættuna á að báðir aðilar herðist í afstöðu sinni. Hún myndi verða til þess að þeir héldu sig frá samningaumleitunum,“ sagði Rice.

Lagði hún áherslu á að neitun Bandaríkjamanna ætti ekki að túlka sem stuðning við landnemabyggðirnar og að bandarísk stjórnvöld hafni sterklega lögmæti áframhaldandi uppbyggingar þeirra.

Sameinuðu þjóðirnar væru hins vegar ekki rétti vettvangurinn til að reyna að leysa hin áratuga löngu átök Ísraels- og Palestínumanna.

Fyrr í dag bárust fréttir af því að Obama hafi varað Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, við því að styðja ályktunina því það hefði slæm áhrif á samskipti Bandaríkjanna og Palestínu og hefði afleiðingar í för með sér.


Er Obama með þessu að tryggja það að hann fá peninga í kosningasjóðinn sinn frá Írael fyrir næstu kosningar.

Mike Mullen, aðmíráll í bandaríska sjóhernum og yfirmaður bandaríska herráðsins, kom til Ísraels til að ræða við þarlenda ráðamenn sem eru uggandi vegna atburðanna í Egyptalandi.

Mótmælendur á Tahrir-torgi tóku í dag niður tjöld sem þeir höfðu reist á torginu. Þúsundir egypskra lögreglumanna söfnuðust saman framan við innanríkisráðuneytið í Kaíró og kröfðust betri launa, aukinnar heilsugæslu og betri vinnuaðstæðna.

Aðgerðir lögreglumannanna fóru fram nokkrum klukkustundum eftir að nýir ráðamenn úr egypska hernum viku stjórnarskránni til hliðar og sögðu í dag að þeir ætluðu að stjórna landinu í sex mánuði, eða þar til haldnar verði kosningar til þings og forsetakosningar.

Mike Mullen, aðmíráll í bandaríska sjóhernum og yfirmaður bandaríska herráðsins, var á sama tíma í heimsókn í Tel Aviv í Ísrael. Hann átti þar fund með Benny Gantz, nýjum herforingja ísraelska hersins.

Mullen heimsótti Ísrael í framhaldi af heimsókn sinni til Jórdaníu. Tilgangurinn með ferð hans er að staðfesta stuðning stjórnvalda í Washington við bandamenn sína þegar margar þjóðir í þessum heimshluta séu áhyggjufullar vegna ástandsins í Egyptalandi.

Mun eitthvað breytast í alvörunni ?


Eru trúarbrögð ekki rugl og vitleysa ?

Ég var að velta þessu fyrir mér eins og ég hef gert oft áður, í því samhengi af hverju stafar þetta óréttlæti í heiminum í dag eiga trúarbrögð einhvern hlut að máli.

Auðvitað spila trúarbrögð stóran þátt í því hvernig heiminum er stjórnað í dag þó held ég að græðgi og valdafíkn ráði þar mestu. Drottnunarárátta á þar líka þátt, sem á það til að birtast í trúarbögðum með því að draga fólk í dilka eftir kynhneigð eða hvort að fólk trúi á réttan Guð.

Ég hef reyndar ekki komist að endanlegri niðurstöðu af hverju óréttlætið stafar. En ég er þó sannfærður um að trúarbrögð eru ekki af hinu góða. Það eiga eflaust einhverjir eftir að gagnrýna þessa skoðun mína.

Þeir allra hörðustu sem telja sig sannkristna myndu segja að kristni sé eina rétta svarið, en í mínum huga er kristni það ekki. Ég tek það fram að ég þarf ekki að lesa Biblíuna spjaldanna á milli til að komast að þessari niðurstöðu.

Mér nægir bara boðorðin tíu til að komast að þessari niðurstöðu, söguna um Adam og Evu, nú eða hvernig kristur varð til eða var hann almennt yfirleit til í þeirri mynd sem er gefin upp af honum í Biblíunni?

Er þetta vettvangurinn til að vera að skrifa um tilgangsleysi trúarbragða myndi einhver spyrja. Sumt fólk er ofurviðkvæmt fyrir þessari umræðu og telur að sér vegið ef það verður fyrir gagnrýni vegna sinna trúarbragða.

En þetta sama fólk getur sett sig í dómarasæti og dæmt alla aðra sem ekki trúa nú eða trúa á eitthvað annað en þeirra Guð. Samkynhneigðir verða líka fyrir miklum fordómum. Því er haldið fram að það fólk lifi í synd af því að bók sem var skrifuð fyrir meira en 2000 árum segir það !!!!!

Hvað um þá sem eru sannkristnir, mega þeir halda sínu fram við alla og jafnvel tala niður til fólks sem er á öndverðum meiði við skoðanir þeirra.

Þetta sama fólk heldur því jafnvel fram að það sé hólpið en við hin sem trúum ekki séum það ekki. Við munum ekki komast til himnaríkis þar sem paradís bíður okkar eftir þessa jarðvist. Hvert förum við hin sem trúum ekki nú eða þeir sem trúa á eitthvað annað, förum við til heljar kannski og hvar er það, mér er spurn?

Það er mín skoðun að þetta fólk sem setur sig í dómarasætið og veifar Biblíunni máli sínu til stuðnings hafi ekki efni á því dæma annað fólk vegna einhvers rits sem það trúir svo einlægt á. Alla vegana er ég sannfærður að Biblían er ekki leiðbeinandi fyrir mig því ég tel hana ekki vera góðan leiðarvísi fyrir mig og börnin mín. Því ég ætla að kenna börnunum mínum umburðarlyndi eins og að minnihlutahópar eins og samkynhneigðir eiga fullan rétt á sér og að það fólk hafi sömu mannrétti og gagnkynhneigðir. Einnig ætla ég að kenna þeim að virða skoðanir annarra, þjálfa ganrýna hugsun til að rökræða um hlutina. Svo mun ég kynna möguleikan á því að ekki sé til neinn Guð sem drottnar yfir okkur sama hvaða nafni eitthver vill nefna hann.

Eflaust munu einhverjir segja að það sé ekki hægt að kryfja þessa hluti til mergjar því vegir Guðs séu órannsakanlegir.

Þá spyr ég á móti, er það eitthvað svar sem ég á að sætta mig við. Vegir Guðs eru órannsakanlegir og þar af leiðandi á ég að trúa því að Jesús var getinn af heilögum anda hann hafi gengið á vatni, breytt nokkrum brauðmolum og smá vatni í vín þannig að þúsundir urðu mettir af. Eftir að hann var drepinn risið upp á þriðja degi og situr við hægri hönd Guðs almáttugs og mun þaðan koma til að dæma lifendur og dauða! Einmitt já..., því að vegir Guðs eru órannsakanlegir þá trúi ég þessari vitleysu.

.


Sigur fólksins :)

Til hamingju almenningur í Egyptalandi með sigurinn yfir valdstjórninni :)

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband